top of page
Ivar Orn.jpg

Ívar Örn Þórhallsson

Heilari • Reikimeistari • Englareikimeistari • Kennari

Ívar Örn Þórhallsson hefur yfir 30 ára reynslu af heilun og Reiki og hefur kennt Reiki og heilun víða um land sem og erlendis. 

 

Ívar er Reikimeistari og Englareikimeistari og hefur í gegnum árin aflað sér fjölbreyttrar reynslu og þekkingar á heilun, orkuvinnu og nuddi. Kennsla hans byggir ekki aðeins á því sem hann hefur lært, heldur á áratuga reynslu af því að vinna með fólki og heilunarorkuna.

 

Ívar leggur mikla áherslu á að hæfileikinn til heilunar búi í okkur öllum. Á námskeiðum hans er lögð áhersla á að þátttakendur læri að treysta eigin innsæi, skynja orkuna og finna sína eigin leið.

 

Ívar kennir meðal annars Almenna heilun fyrir byrjendur, Reiki 1 og 2 og Reikimeistaranám. Námskeiðin eru bæði fræðileg og verkleg, en fyrst og fremst snúast þau um að upplifa heilunina sjálfur.

 

„Mitt markmið er að hjálpa fólki að uppgötva og treysta þeim hæfileikum sem það býr nú þegar yfir.“

​

Tímabókanir

Tímabókanir á netfangið listamenn@gmail.com , síma: 770 3773

og á noona.is/srfa

  • Instagram
  • Facebook

​

​

​

© 2025 Sálarrannsóknarfélagið á Akureyri

bottom of page