Orka, mörk og vernd - vinnustofa með Eygló Sigurðar
fim., 24. sep.
|Strandgata 37 b
Vinnustofa um eigin orku, heilbrigð mörk og að standa sterkar í sjálfri/sjálfum sér.


Tími & staðsetning
24. sep. 2026, 18:00 – 22:00
Strandgata 37 b, Strandgata 37b, 600 Akureyri, Iceland
Um viðburðinn
Vinnustofa um eigin orku, heilbrigð mörk og að standa sterkar í sjálfri/sjálfum sér.
Finnst þér þú stundum taka inn líðan, tilfinningar eða orku annarra?
Verður þú þreytt/ur eða yfirkeyrð/ur eftir ákveðnar aðstæður eða samskipti?
Eða langar þig einfaldlega að verða meðvitaðri um þína eigin orku og læra að hlúa betur að henni?
Í þessari vinnustofu ætlum við að skoða orkuna okkar, orkumörk og vernd á einfaldan og praktískan hátt.
Við skoðum hvernig við getum betur greint á milli þess sem er mitt og þess sem er ekki mitt, hvernig líkaminn getur hjálpað okkur að finna mörkin okkar og hvernig við getum styrkt eigið rými án þess að loka okkur af.
