top of page

Heilun ættarlína – Ferðalag inn í ræturnar okkar námskeið með Eygló Sigurðar

fös., 27. nóv.

|

Akureyri

Stundum þurfum við að líta til baka til að skilja betur hvar við stöndum í dag. Við berum öll með okkur sögu. Sögu fjölskyldunnar okkar, reynslu þeirra sem á undan okkur komu og mynstur sem hafa mótast í gegnum kynslóðir.


Tickets are not on sale
Heilun ættarlína – Ferðalag inn í ræturnar okkar  námskeið með Eygló Sigurðar
Heilun ættarlína – Ferðalag inn í ræturnar okkar  námskeið með Eygló Sigurðar

Tími & staðsetning

27. nóv. 2026, 20:00 – 29. nóv. 2026, 17:00

Akureyri, Strandgata 37, 600 Akureyri, Iceland

Um viðburðinn

HEILUN ÆTTARLÍNA – Ferðalag inn í ræturnar okkar

Stundum þurfum við að líta til baka til að skilja betur hvar við stöndum í dag.

Við berum öll með okkur sögu. Sögu fjölskyldunnar okkar, reynslu þeirra sem á undan okkur komu og mynstur sem hafa mótast í gegnum kynslóðir.

Sum þessara mynstra þekkjum við vel, önnur eru okkur síður meðvituð. Þau geta haft áhrif á hvernig við sjáum okkur sjálf, tengjumst öðrum og bregðumst við því sem lífið færir okkur.

En ættarlínan okkar geymir ekki bara erfiðleika. Þar finnum við líka styrk, kærleika, seiglu og visku.

Á þessu þriggja daga námskeiði ætlum við að gefa okkur tíma til að skoða ræturnar okkar, kynnast eigin sögu betur og vinna með það sem við viljum ekki lengur bera áfram.


Deila þessum viðburði

  • Instagram
  • Facebook

​

​

​

© 2025 Sálarrannsóknarfélagið á Akureyri

bottom of page