Hópheilun með Hildu, Eygló & Huldu
sun., 19. okt.
|Akureyri
Vegna mikillar aðsóknar! - ATH skráning nauðsyn. Heilun er ferðalag inn á við, þar sem líkami, hugur og sál fá tækifæri til að endurheimta jafnvægi sitt. Hún snýst ekki aðeins um að losa um sársauka eða áföll, heldur líka um að opna hjartað fyrir meiri friði, kærleika og tengingu við sjálfan sig.


Tími & staðsetning
19. okt. 2025, 20:00 – 21:00
Akureyri, Strandgata 37, 600 Akureyri, Iceland
Um viðburðinn
Vegna mikillar aðsóknar ætla þær Hilda, Eygló & Hulda að endurtaka hópheilun n.k sunnudagskvöld.
Verið velkomin í hópheilun í Sálarrannsóknarfélaginu á Akureyri sunnudagskvöldið 19. október kl. 20. Stundin er í um klukkustund og fer heilun fram í sætum í salnum.
Gjald: 3.000 kr. - Ekki er posi
Skráning: hulda@hjartalag.is
Þær Hilda, Eygló og Hulda hafa um árabil starfað við félagið, við heilun, miðlun og í stjórn félagsins. Nú sameinast þær í því fallega starfi að leiða hópheilun.
Heilun er ferðalag inn á við, þar sem líkami, hugur og sál fá tækifæri til að endurheimta jafnvægi sitt. Hún snýst ekki aðeins um að losa um sársauka eða áföll, heldur líka um að opna hjartað fyrir meiri friði, kærleika og tengingu við sjálfan sig. Í kyrrð og trú á eigin innri styrk getur heilunin átt sér stað — mjúklega, náttúrulega og á sínum tíma.
